I dag ræðum við um trúlofun okkar Katie, fyrirhugað brúðkaup, nýtt upptökutæki, nýjustu fréttir um hjólreiðar og svo bara annað blaður um lífið og tilveruna.
Uppfært: Ég var ekki með græjuna alveg rétt stillta þannig að það heyrist aðeins lægra í mér en það átti að vera. Þessu verður öllu kippt í liðinn fyrir næsa podcast!
Þáttur númer þrjú kominn í loftið. Að þessu sinni ræði ég um að vorið sé komið í New York, hjólreiðar, hvað ég er að bralla í vinnunni, háskóla körfuboltann og svo kosningarnar á Ísland. Einnig renni ég snögglega yfir hvað var heitt og kalt þessa vikuna! Að lokum vil ég biðjast afsökunnar á því að vera alltaf að sjúga upp í nefnið, var ekki að átta mig á því þegar upptökum stóð.
Jæja, þá er komið að hljóðvarpi númer 2! Í þessum þætti blaðra ég um síðustu daga, til dæmis um að fá fólk í heimsókn um hlegina, fékk pakka frá klókri systur minni og svo skoðum við aðeins hvað er heitt og kalt síðustu daga. Njótið!
Jæja, ég hef ákveðið að breyta aðeins út af vananum og prufa að henda í eitt podcast, í þeim tilgangi að sjá hvort það gangi betur heldur að skrifa, sem ég augljóslega nenni ekki lengur að gera. Í þessum “þætti” ræði ég síðustu viku þar sem ég myndaði Ásgeir Trausta á tónleikum, sem og afmæli Katie um helgina.